29.10.2007 | 17:17
Hvað þarf ...
... marga hunda til þess að skjóta af byssu? Hvað er hópur af hundum margir hundar? Skutu þeir veiðimanninn í "vinstri hálfa Harris"?
Finnst fréttamenn mbl.is stundum vera að flýta sér að koma út "fréttum".
Ég segi bara ekki annað
Hundar skutu veiðimann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.10.2007 | 17:05
Hver er?
Hver er "Orkuveitan" sem vill vísa málinu frá? Er ekki komin ný stjórn og nýr stjórnarformaður í fyrirtækið? Er ekki rétt að fram komi hverjir fara fram á að máli Svandísar verði vísað frá?
Ég held að Svandís sé að vísa eigin máli frá - Getur það verið?
Orkuveitan vill vísa máli Svandísar frá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2007 | 17:04
Frétt?
Er það allt í einu orðin frétt þegar einhverjir verktakar eða verktakafyrirtæki sinna verkefnum fyrir einkaaðila? Hefði frekar skilið fréttagildið ef um væri að ræða opinbera framkvæmd.
Ég skil ekki af hverju verið er að setja þetta inn sem frétt.
Háfell sér um jarðvinnu fyrir verslun Bauhaus á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.10.2007 | 13:20
Við nánari athugun
Fyrirsögnin en mun verri en fréttin sjálf. Við nánari lesningu á fréttinni kemur í ljós að hér er um að ræða unglinga en ekki fullorðinn einstakling og barn eins og ég taldi þegar ég las fyrirsögnina og fyrstu línu fréttarinnar.
Verið er að refsa unglingum í leit að sjálfum sér en ekki ótýndum og of á tíðum geðtrufluðum glæpamönnum.
Svona fyrirsögn finnst mér vera eitthvað sem "DV blaðamennskan" gengur út á en ekki eitthvað sem ábyrgir fjölmiðlar setja fram sem fyrirsögn.
Ég held að menn verði að vanda fréttaflutning betur
Tíu ára dómur fyrir munnmök styttur í tólf mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.10.2007 | 13:08
Handhafi
Það er örugglega fínt að vera handhafi forsetavalds þegar við erum með svona ferðaglaðan forseta. Hvernig kemst maður í svona gott jobb?
Ég vildi að ég væri svona handhafi forsetavalds
Tvöföld forsetalaun í 100 daga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.10.2007 | 17:17
Dónaleg mynd?
Besti vinur minn sendi á mig þessa mynd með yfirskriftinni "svolítið horny"
Ég held að myndin tali fyrir sig sjálf
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.10.2007 | 17:10
Seljum RÚV - leggjum niður afnotagjöld
Þetta er nú meira ruglið. Hvað kostuðu þessi málaferli RÚV og íslenska ríkið? Getur verið að svona aðgerðir borgi sig?
Teldi eðlilegt, ef ríkið ætlar að halda áfram með þennan rekstur, að taka frekar upp nefskatt í staðin fyrir að innheimta afnotagjöld. RÚV hélt á sínum tíma úti sérstökum innheimtumönnum til þess að elta uppi alla "glæpamennina" sem voru að horfa og hlusta frítt á RÚV miðlana og held ég að þeir séu enn á stjá að leita og fleiri "glæpamönnum" og eru þeir örugglega ekki að vinna frítt.
Sjálfur er ég á því að við eigum að selja RÚV því ríkið eða sveitafélög eiga ekki að standa í samkeppnisrekstri.
Ég er á því að við eigum að selja RÚV
RÚV má innheimta afnotagjöld af útvörpum í atvinnubílum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.10.2007 | 17:07
Össur á faraldsfæti
Össur er hér í eðlilegu embættisverki sem heyrir meira undir hans ráðuneyti heldur en embætti forseta Íslands.
Forsetinn á að vera sameiningartákn fyrir þjóðina en ekki einhver sem fer á milli þjóða til þess að selja land og þjóð. Forsetinn á helst að vera til "heimabrúks", eins og hann sjálfur orðaði það.
Ég hef alltaf kunnað vel við Össur Skarphéðinsson
Össur átti fund með forseta Filippseyja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2007 | 17:04
Fyrst núna
Fyrst núna er þetta að koma fram en þetta mál er enn og aftur að taka á sig nýja mynd.
Ég og fleiri eru alveg hættir að botna í þessu máli
Mynd birt af hugsanlegum ræningja Madeleine | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.10.2007 | 17:21
Til hamingju
Víl óska samkynhneigðum og Þjóðkirkjunni til hamingju með þessa niðurstöðu en hún er eins og ég vonaðist eftir að hún yrði.
Þetta er mikið réttlætismál fyrir samkynhneigða en er samt ekki kúvending á stefnu Þjóðkirkjunnar. Sérstaklega ánægjulegt er að heyra að öll greidd atkvæði voru með þessu en þannig niðurstaða hlýtur að teljast mjög afgerandi og viðist þá hafa verið almenn sátt um þetta.
Kirkjan boðar sátt og samlyndi og verða aðilar þá, í einhverjum tilvikum, að sætta sig við að fá ekki öllu sínu framgengt.
Nauðsynlegt er að sátt sé um íslensku Þjóðkirkjuna og tel ég þetta vera leið sem sátt ætti að geta ríkt um.
Ég fagna þessari niðurstöðu
Verum meðvituð um að niðurstaða er fengin og gleðjumst yfir því" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)