7.1.2008 | 21:07
Kannast ekki við niðurrif húsanna
Hvernig stendur á því að nýr borgarstjóri fær að komast upp með það að segja að ekki sé verið að rífa húsin en um leið er verið að rífa húsin.
Ég held að hér vanti eitthvað upp á fréttamennskuna
Kúbein á lofti við Laugaveg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.1.2008 | 00:05
Samkeppni olíufélaganna er á bakvið tjöldin
Samkeppnin á bensínmarkaði virðist vera engin fyrir hinn almenna neytanda en svo virðist sem samkeppnin sem AO kom með inn á þennan markað hafi fjarað út og félögin öll séu sátt við sína hlutdeild hjá almenningi.
Ég veit fyrir víst að eitthvað sé verið að keppa á fyrirtækjamarkaði en það er allt unnið á bakvið tjöldin og kemur ekki fyrir sjónir hins almenna neytanda.
Konan mín fékk mjög óvænt tilboð í gegnum sinn vinnustað en það er í gegnum hennar vinnustað. Þar er eitt af stóru olíufélögunum að bjóða -10 krónur í afslátt í sjálfsafgreiðslu og hlýtur það að vekja miklu furðu þar sem olíufélögin halda því fram að álagning á bensíni sé mjög lág.
Við fjölskyldan höfum verið hjá AO með dælulykil og ætla ég núna að bjóða þeim að jafna þetta tilboð og fæ það vonandi í gegn en ef ekki þá mun ég færa mig til þessa stóra olíufélags aftur.
Ég vona að AO samþykki að jafna þetta tilboð en vil að sjálfsögðu bjóða þeim það
Eldsneytisverð hefur hækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.1.2008 | 12:17
Gleðilegt ár!
Gleðilegt ár góðu bloggarar! Vona að árið verði ykkur happadrjúgt og gleðilegt!
Ég held að árið veriði frábært!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
31.12.2007 | 10:02
Hvar er hægt að bóka sig?
Alveg hef ég misst af því þegar þetta var auglýst!
Ég held reyndar að ég hefði ekki fengið að skrá mig
60 krár á 25 dögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.12.2007 | 20:27
Styrkjum björgunarsveitirnar
Við verðum nú fyrir áramótin að muna eftir því hverjir það eru sem alltaf eru til taks fyrir okkur þegar við komumst í hann krappann.
Ég mun örugglega styrkja skátana í mínu bæjarfélagi
Að ná til ferðalanganna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.12.2007 | 18:11
Sannspá Völva?
Getur verið að Völvan verði sannspá með stjórnarslit á næsta ári? Getu verið að formaður Samfylkingarinnar hugsi sér nú gott til glóðarinnar?
Ég vona að Völvan verði ekki sannspá
Völvan spáir stjórnarslitum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
24.12.2007 | 02:46
Jóla(blog)kveðja
Góðu blogvinir og aðrir.
Sendi mína bestu jólakveðjur og þakka fyrir skemmtileg og góð samskipti hér á netheimum.
Ég vona að þið og ykkar hafið það gott um jólin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
21.12.2007 | 08:44
Hvað kostar mannorðið?
Þó að ég fagni þessum dóm þá verð ég að segja að mér finnst upphæðin fyrir ummæli eins og þessi ekki vera há, en mannorðsmorð eins og þetta ætti að vera "verðlagt" hærra.
Ætli það sé tilviljun að DV hafi ráðist á fjölmiðlamann sem er í samkeppni við móðurfélagið?
Getur verið að yfirmenn ritstjóra á þessum tíma hafi fundist standa ógnun af Skjá einum og því hafi ritstjóri á þessum tíma fengið stímtal að ofan og fyrirskiptað að sverta mannorð Magnúsar?
Getur verið að fjölmiðlasamsteypa eins og 365 eða Dagsbrún sé ekki eins óháð eins og þeir vilja meina?
Myndu þeir fara með "kjaftasögu" um eigendur sína inn á forsíðu eða í aðalfréttatíma?
Ég held að "Baugsmiðlarnir" séu ekki eins óháðir og þeir vilja meina.
Fær 1,5 milljónir í bætur fyrir meiðyrði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2007 | 17:00
Barnaspítali Hringsins
Fór í gær ásamt nokkrum vinnufélögum til þess að afhenda peningagjöf starfsmannafélagsins og fyrirtækisins til Barnaspítala Hringsins. Á staðinn með okkur mættu m.a. 2 jólasveinar og var gaman að sjá hvernig brúnin á litlu hetjunum lyftist þegar rauðklæddu karlarnir komu á svæðið.
Það einhvernvegin þyrmdi yfir mig á staðnum þegar ég hugsaði til þess hvað maður hefur verið lánsamur að eiga hraust og heilbrigð börn, en það tekur örugglega á fjölskyldur, svo maður tali nú ekki um börnin, að ganga í gegnum erfiðleika sem fylgja veikindum.
Ég er þakklátur fyrir að eiga heilbrigð börn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.12.2007 | 22:50
Auglýsingar í áskriftarsjónvarpi
Hvað ætli Ara Edwald finnist um það að verið sé að auglýsa í áskriftarjónvarpi eins og Stöð-2?
Ég ákvað endanlega að hætta með Stöð-2 þegar voru komnir 3 auglýsingatímar inn í 24. Það fannst mér alveg fylla mælirinn.
Skil ekki alveg af hverju verið er að setja út á að verið sé að auglýsa á besta tíma. Þeir á 365 myndu pottþétt nýta sér það og finnst mér þeir gera lítið út sér með að vera að skammast yfir þessu.
Ég er ekki með Stöð-2 eða aðra af miðlum 365
Kvartað vegna auglýsingar í Áramótaskaupi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)