Sól, hiti, króm og drunur

Er núna staddur í Florída en hér er bara fínt veður og verður þannig vonandi áfram. 

Fórum í gær inn á Daytona þar sem Bikeweek stendur yfir.  Þarna koma saman þúsundir og aftur þúsundir af mótorhjólum og mótorhjólafólki og var einstök upplifun að koma þarna og fá stemminguna beint í æð.

 DSC00254

Við reiknum með að fara aftur inn á Daytona í dag og taka inn smá meira af stemmingunni.

Ég hvet alla til þess að að prófa þetta ef þeir hafa tök á því


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Kristinsdóttir

Kveðja til ykkar allra úr snjókomu og roki

Anna Kristinsdóttir, 6.3.2008 kl. 13:09

2 Smámynd: Rebbý

einhvernvegin grunar mig að nokkrir vinnufélagar okkar séu smá grænir í framan þegar þeir hugsa til þín þarna á bikeweek
góða skemmtun í sólinni og hitanum

Rebbý, 6.3.2008 kl. 17:46

3 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Já Rebbý, ég veit um nokkra þeirra.  Hef aðeins verið að nudda þeim upp úr þessu

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 7.3.2008 kl. 03:30

4 identicon

Hafið það rosalega gott á Flórída og á BIKEWEEK - við vorum þarna í fyrra og það var alveg meiriháttar gaman - hefði samt gjarnan viljað vera sjálf á mótorhjóli - var þá bara akandi og gangandi

Er einhver tenging á milli fyrirhugaðra linsukaupa og fáklæddu stúlknanna í DAYTONA

Hafið það rosalega gott

kær kveðja
Haddý

Halldóra Matt (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 23:39

5 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Haddý, thats for me to know and you maby not to find out 

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 8.3.2008 kl. 04:25

6 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Góða skemmtun þarna úti. Það er yndislegt að vera á Florida. Kveðja úr kuldanum og slabbinu.

Bjarndís Helena Mitchell, 8.3.2008 kl. 11:30

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Iss allt of heitt, eða "þau eru súr sagði refurinn"  skemmtu þér rosa vel.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.3.2008 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband