Færsluflokkur: Bloggar

Ótrúleg veðurblíða

Það er með ólíkindum hvað við höfum verið heppin með veðrið undanfarna daga.  15-20 gráður og sól er eitthvað sem við eigum ekki að venjast í marga daga í röð og er rétt að þakka fyrir hvern dag sem við fáum þannig. 

Við hjónin vorum nú um helgina að vinna í garðinum og við húsið og var sérstaklega gaman að sjá framkvæmdagleðina hjá nágrönnunum.  Meðan verðið er svona gott þá hreinlegar verður maður að fara út og gera eitthvað.  Smá skúr í gær pirraði suma á heimilinu en þetta virðist aðeins hafa verið smá hítaskúr og kærkomin vökvun fyrir gróðurinn.

Ég vona að veðrið haldist gott áfram


mbl.is Hægviðri og bjart sunnan- og vestanlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróður skilar sér vonandi til flestra

Sonur minn er í æfingaakstri og segist hann ekki vilja keyra hratt og segir hann að sér líði illa með félögum sínum í bíl ef þeir keyra of hratt og vona ég að hann muni ekki stunda glannaakstur eða hraðakstur þegar hann mun sjálfur fara að keyra.

Ég vona að  svona áróður muni skila sér til sem flestra ungra ökumanna


mbl.is Hraðinn drepur - getuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandamál foreldra og forráðamanna

Ef unglingar eru á fylleríi í útilegum úti á landi og eru til vandræða er það foreldravandamál en ekki unglingavandamál. 

Merkilegt að foreldrar og forráðamenn séu að samþykkja það að börnin þeirra séu að fara eftirlitslaus í útilegu. 

Ég myndi ekki senda "barnið" mitt eitt í útilegu.


mbl.is Ölvun og ólæti á tjaldsvæði í Fljótshlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misjafnar aðferðir

Hvernig á að ákveða hverjir verða ráðherrar og hverjir ekki?  Hvort er réttara að gera það eftir kynjakvótum eða láta t.d. prófkjör og atkvæðamagn ráða?

Ég er sammála því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn valdi sín ráðherraefni


mbl.is Innan við helmingur landsmanna sáttur við ráðherraval
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir H. Haarde og Sjálfstæðisflokknum að þakka

Tel fullvíst að vinsældir ríkisstjórnarinnar séu Geir H. Haarde og Sjálfstæðisflokknum að þakka.  Geir er ótvíræður foringi en sama er ekki að segja með formann Samfylkingarinnar.

Ég er rosalega ánægður með formann Sjálfstæðisflokksins


mbl.is Mikill meirihluti styður ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íbúakosning?

Samfylkingin í Hafnarfirði mun örugglega setja þetta í íbúakosningu eins og þeir vilja gera með óþægileg mál.  Eftir kosninguna munu þeir síðan fara þvert á móti kosningunni eins og þeir gerðu í Alcan málinu.

Ég skil þetta fólk ekki


mbl.is Segir útilokað að Hafnarfjörður geti eignast 60% í HS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orð á móti orði

Strax í upphafi þá trúði ég ekki þeim lýsingum sem hafðar voru um "meint" hundadráp.  Miðað við hvað er haft eftir Helga Rafni þá trúi ég varla að hann hann hafi gert þetta.

Ég vona, ef hann er saklaus, að hann geti sannað sitt mál


mbl.is Hreinsa mannorð mitt með öllum ráðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG á móti framþróun og einkavæðingu

Rosalega er ég hissa á því að VG sé á móti þessu og vilji ekki einkavæða.

Ég er mjög fylgjandi allri einkavæðingu


mbl.is VG krefst þess að ríkið falli frá sölu sinni á hlut í Hitaveitu Suðurnesja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrítin fyrirsögn

Stundum er Mogginn með svo skrítnar fyrirsagnir en þeir virðast vera að breyta sinni stefnu hér á netinu.

Ég skildi fyrirsögnina ekki fyrr en ég var búinn að lesa fréttina í gegn


mbl.is „Með verstu blæðingum sem ég hef upplifað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra að hafa starfsemina "opinbera"

Sé ekkert að því að stofna svona samtök og skil ég raun ekki af hverju bannað er að spila póker á meðan fólk á öllum aldri getur farið í spilakassa um allan bæ og spilað þar t.d. póker eða Black jack.

Ég er sammála þessu framtaki


mbl.is Pókersamband Íslands stofnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband