Færsluflokkur: Bloggar

Hvernig á það að virka?

Ég hefði talið að þær upplýsingar sem lögreglan hefur undir höndum séu persónuupplýsingar og því ekki heimilt að framvísa þeim til aðila eins og t.d. tryggingarfélaga.

Ef svona kerfi á að virka þyrfti að setja ökurita í alla bíla því að lögreglan er skiljanlega ekki að ná öllum þeim sem eru að keyra of hratt.

Ég held að ég sé með einn punkt (heppinn) í mínum ökuferilsskrám


mbl.is Ökuníðingarnir borgi hærri iðgjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vandamál"

Þetta er eitt af vandamálunum sem fylgir góða veðrinu.  Önnur vandamál eru t.d. frjókorn og sólbruni.

"Fátt er svo með öllu gott að eigi boði nokkuð illt"

Ég hef einnig þurft að vökva hjá mér.


mbl.is Höfuðborgarbúar duglegir að vökva
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfitt að muna hvað var sagt í stjórnarandstöðu

Það er mun auðveldara að vera í stjórnarandstöðu heldu en í stjórn því það er svo auðvelt að vera á móti málum þegar maður er í stjórnarandstöðu.

Ég held að þingmenn og ráðherrar Samfylkingar þurfi að éta ansa margt ofan í sig eftir að þeir eru komnir í ríkisstjórn


mbl.is Jóhanna gagnrýndi lækkun lánshlutfalls fyrir ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur rosalega á óvart

Jahérna, á nú að demba á okkur enn einni hækkuninni.

Ég man sjaldan eftir lækkun á bensíni þegar bensínið hefur lækkað í útlöndum


mbl.is Stefnir í hækkun á bensíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilur einhver eitthvað í þessu máli?

Þetta mál er orðið að svo miklum "farsa" að maður er alveg hættur að botna í því hver að er að kaupa hvern og hver að að nýta forkaupsrétt og til hvers.

Ég skil þetta mál ekki. 


mbl.is Hafnarfjörður nýtir forkaupsrétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er til ráða í þessum málum?

Er til einhver "patent" lausn í þessum málum?  Tel að strangari refsingar og hærri viðurlög muni ekki skila neinu þannig að við verðum einhvernvegin að reyna að höfða til þeirra sem stunda þetta.

Ég hef ekki "patent" lausn á þessu vandamáli


mbl.is „Eigum ekki að sætta okkur við þetta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar að gera kerfið skilvirkara

Að hugsa sér að þetta stór hluti af börnum skuli þurfa að lifa við aðstæður sem þessar. 

Hef mjög nærtækt dæmi þar sem ung stúlka lifði inni á heimili þar sem móðirin var á kafi í eiturlyfjum og fylgdi henni hópur af fólki sem var svipað ástatt fyrir.  Það mátti sjá á litlu stúlkunni að hún hafði upplifað ýmislegt misjafn en þrátt fyrir allt gekk ekkert að koma henni út af heimilinu fyrr en rúmlega þremur árum eftir að á þessu fór að bera.  Það virstist vera sama á hverju gekk og hvað komu margar kærur vegna neyslu og afbeldisverka inni á heimilinu.  Að hugsa sér að kefið okkar skuli ekki vera skilvirkara. í málum sem þessum. 

Litla stúlkan er loksins komin út af heimilinu en ljóst að það mun taka mörg ár að græða sárin sem komin eru á sálina á henni.

Ég er glaður og heppinn að mín æska gekk ekki svona


mbl.is Fimmta hvert barn á grunnskólaaldri hefur sætt líkamlegu ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einstök veðurblíða

Það er einstakt hér á sv-horninu að upplifa dag eftir dag þar sem við höfum sól og hita og man ég varla eftir jafn góðum kafla í veðurblíðu.

Ég vona að þetta haldist svona áfram


mbl.is Fimmti hlýjasti júnímánuðurinn í Reykjavík frá því mælingar hófust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðhaldsaðgerðir

Núna verð ég að fara að fara að grípa til einhverra aðhaldsaðgerða til þess að passa upp á virktina en hún er stöðugt að þokast upp á við.

Ég ætla að fara að drekka litla bjóra


Til bjargar rekstrinum

Vonandi verður þetta til þess að bjarga rekstrinum á meðan verið er að finna fjárfesta en ég tel að Byggðastofnun eigi ekki að eiga í fyrirtækinu til langframa. 

Ég vona að reksturinn komist aftur í gang sem fyrst


mbl.is Byggðastofnun keypti hlut í Miðfelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband