Færsluflokkur: Bloggar

Frægur hundur

Lítil þúfa veldur stundum þungu hlassi.

Ég er glaður fyrir hönd allra hlutaðeigandi


mbl.is Lúkas kominn heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott á Dani?

Loksins getum við svarað fyrir okkur eftir 14-2 í "den"

Ég held nú að þetta fari að breytast


mbl.is Huggandi ferðalög til sólarlanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Setjum málið í þjóðaratkvæðagreiðslu

Getur verið að Ingibjörg ætli að hýsa fólkið heima hjá sér í Vesturbænum þar sem hún er aldrei heima hjá sér?  Ætlar hún að taka sér alræðisvald og ákveða þetta fyrir hönd þjóðarinnar?  Hún hefur hingaðtil fordæmt ýmis verk og viljað vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ég get ekki tekið að móti fólkinu


mbl.is Rætt um möguleika á að flytja íraska flóttamenn frá Jórdaníu til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraunsnef í Borgarfirði

JeppasafaríFór nú um helgina með allstórum hóp í útilegu á stað sem heitir Hraunsnef og er í Borgarfirði. 

Þarna er rekið sveitahótel og tjaldsvæði er og fyrsta flokks aðstaða á staðnum.  Staðarhaldarar eru sérstök ljúfmenni og er nær ekkert sem þau gera ekki fyrir þá sem koma til þeirra.  Við fórum þar í jeppasafarí á Landrover jeppa sem bóndinn á svæðinu er með og var með ólíkindum hvað hann bauð bílnum upp á. 

Áður en við fórum í bæinn á sunnudaginn fengum við okkur að borða hjá Brynju húsfreyju og töfraði hún fram veitingar af sinni alkunnu snilld. 

Ég hvet ykkur til þess að koma við í Hraunsnefi í Borgarfirði

 


Mótmælum mótmælendum

Legg það til að við hittumst á Austurvelli og mótmælum því að mótmælendur séu að koma hingað og mótmæla.

Ég mæti ef þið mætið


mbl.is Mótmælum við Grundartanga hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algjör gúrkutíð

Fréttir undanfarinna daga hafa verið frekar ómerkilegar en þegar maður sér fréttir um skil á einhverjum "ómerkilegum" púða þá er fokið í flest skjól.

Ég yrði ekki hissa ef sagt yrði frá fótbrotinni rollu á Akureyri


Gott er að Lúkas er á lífi

Ánægjulegt að heyra það að hundurinn Lúkas sé á lífi. 

Ég trúði aldrei að einhver hefði getað farið svona með dýrið.


mbl.is Hundurinn Lúkas á lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tek undir með Valgerði

Hefði haldið að Össur ætti að vera með það mikla reynslu að hann ætti ekki að láta hafa svona eftir sér. 

Ég held að Össur ætti að passa sig á því hvað hann segir


mbl.is Valgerður Sverrisdóttir undrast ummæli iðnaðarráðherra um Rio Tinto
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upp til "fjalla"

DSC00022_1

Fyrsta "fjallaferðin" var farin í kvöld en fjallið var eiginlega fell en við Klara , Eiríkur Egill og Snót keyrðum upp á "fjallið" Gunnhildi.

Ég á nú eftir að fara upp á hærri fjöll en þetta


Ég var klukkaður

Fékk útskýringu á þessu með klukkið og hér er mitt:

1.  Ég er skuldugur

2. Ég get verið þrjóskur

3. Ég vildi að ég væri (aðeins) léttari

4. Ég er hamingjusamur

5. Ég hef verið rassskelltur

6. Ég hef gert hluti sem ég sé eftir

7. Ég var ekki til fyrirmyndar sem unglingur

8. Ég hef verið klukkaður

 

Ég mun finna átta aðila til þess að klukka

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband