Færsluflokkur: Bloggar
26.7.2007 | 17:42
Dýrin finna hluti á sér
Fjölskyldan hjá mér er með hund og kött en kötturinn er orðinn 17 ára gamall. Alltaf þegar eitthvað stendur til er eins og dýrin finni á sér að eitthvað sé að fara að gerast.
Fyrir nokkrum árum síðan var þrumuveður í aðsigi en einhverjum sekúndum áður en þruman kom rauk kötturinn á fætur og faldi sig.
Kötturinn okkar sefur oft til fóta hjá okkur og við erum ekki dauð enn
![]() |
Kötturinn með ljáinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2007 | 17:41
Veitt utan kvóta?
Getur verið að þeir séu að veiða þetta utan kvóta? Ætli þeir viti af þessu hjá Harfó og Sjávarútvargsráðuneytinu?
Ég hef nokkrum sinnum veitt úr sjó og aldrei gefið það upp
![]() |
Góð veiði á sjóstöng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2007 | 23:26
Breyting á eignarhaldi
Hef aðeins einu sinni farið í Galtalækjarskóg en það var síðasta sumar og var yndislegt að vera þar en þægindi sem eru á mörgum öðrum tjaldsvæðum eins og t.d. rafmagn og þannig var ekki til staðar og salerni og fleira orðið ansi hrörlegt. Man sérstaklega eftir því að maður þurfti að passa upp á að sýna ekki söngvatnið sem stundum er með í ferðum en væntanlega verður einhver breyting á því.
Ég reikna með að fara einhverntíman aftur í Galtalækjarskóg
![]() |
Galtalækjarskógur seldur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.7.2007 | 19:10
Dulkóðuð skilaboð frá Saving Iceland
Þetta eru greinilega dulkóðuð skilaboð frá aðilum í Saving Iceland. Þeir eru örugglega að skipuleggja mótmælastöðu vegna viðræðna um jarðgöng til Vestmannaeyja.
Ég held að við verðum að vera á varðbergi
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2007 | 17:59
Fórnarlömb kommúnista
Að hugsa sér að það skuli vera til svona mikil mannvonska í heiminum en hlutir eins og þessir þekkjast ennþá þó vonandi í mun minni mæli nú en áður.
Fór fyrir einhverjum árum síðan til St. Pétursborgar og mátti sjá það að fátæktin í Sovétríkjunum en enn til þó að fólk hafi það mun betra en var á Stalín tímanum. Þar fórum við m.a. og skoðuðum postulínsverksmiðju þar sem hámenntaðir listamenn á lúsarlaunum voru að skreyta bolla og diska. Mánaðarlaun þeirra á þeim tíma voru um 100 dollarar og á því þurftu þeir að framfleyta sér og fjölskyldum sínum.
Boð og bönn eru enn við líðið í kommúnistaríkjum og verðum við Íslendingar að vera þakklát fyrir það að afturhaldssemi vinstri flokka á Íslandi hefur ekki náð hér fram að ganga.
Heimsótti síðan Berlín á síðasta ári og mátti sjá þar mjög skörp skil á milli gömlu Austur-Berlínar og þess hluta Berlínar sem tilheyrði vestrinu.
Þýskaland er smám saman að ná sér eftir eyðileggingu kommúnista en uppbyggingin þar hefur tekið 16 ár en það er sami tími og tók sjálfstæðismenn að hreinsa til eftir síðustu vinstri stjórn á Íslandi.
Ég er hægrimaður og aðhyllist frelsi og einkaframtak
![]() |
Minnast fórnarlamba Stalíns-tímans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2007 | 17:47
Hrókur alls fagnaðar
Þessi aðili hefur örugglega verið hrókur alls fagnaðar
Ég hefði nú ekki fengið mér kók ef ég hefði verið þarna
![]() |
Keypti drykki á barnum fyrir 13 milljónir kr. |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2007 | 17:46
Jahérna
Var þetta síðan gabb eftir alltsaman?
Ég sem sagði upp í vinnunni
![]() |
Ekkert nethappdrætti á vegum Vodafone |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2007 | 23:18
Peningunum væri betur varið í þarfari verkefni
Verð að segja það fyrir mína parta að það væri ekki mjög þjóðhagslega hagkvæmt að búa til göng á milli lands og Eyja. Það eru mun þarfari verkefni í vegabótum sem þarf að huga að.
Ég myndi ekki gráta það þótt ekki yrðu gerð göng til Vestmannaeyja
![]() |
Álitamál hvort göng til Vestmannaeyja séu réttlætanleg" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.7.2007 | 23:12
Mótmælendur
Sá í Kastljósinu í gær einn af fáum Íslendingum sem tilheyra samtökunum "Saving Iceland" og var hreinlega gáttaður yfir því hvernig blessaður maðurinn kom fyrir. Fréttakonan eða spyrillinn virtist verða meira og meira hissa á þeim tilsvörum mannsins og var eins og viðtalið allt í einu endaði og skildi ég ekki alveg í því af hverju verið var að fá manninn í viðtal. Skil ekki af hverju verið er að gefa þessu liði pláss á fréttatímum og umræðuþáttum. Á meðan fjölmiðlar eru að fjalla um það sem samtökin eru að gera halda þau áfram í þessari vitleysu.
Ég held að þessi samtök hafi akkúrat engan hljómgrunn á Íslandi.
![]() |
Aðgerðarsinnar mótmæla við álverið í Straumsvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2007 | 19:37
Þegar Stebbi fór á sjóinn ...
Ýmislegt hefur maður prófað en ekki þetta
Ég held að ég fari varla að taka upp á því úr þessu
![]() |
Stórhættulegur leikur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)