Færsluflokkur: Bloggar

Heimska?

Hvað er eiginlega að fólki?

Ég held að þessi stígi ekki alveg í vitið


mbl.is Staðinn að þjófnaði á lögreglustöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekkert mjög hissa á þessu

Spáið alvarlega í því að enginn karl sækir um stöðuna.

Ég held að þeir viti að þeir yrðu aldrei teknir framyfir konur í þetta starf


mbl.is Níu sóttu um starf framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komu geimverur og tóku bókina?

Getur verið að geimverur hafi komið við og tekið bókina?

Ég veit ekki hvort eru til geimverur


mbl.is Dýrmæt gestabók horfin af Hótel Búðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Föstudagurinn þrettándi

Í dag er föstudagurinn þrettándi en margir eru verulega hjátrúarfullir og fara ekki úr húsi á þeim degi.  Fyrir mörgum árum síðan átti ég vin sem átti að fara í próf föstudaginn þrettánda og fékk hann leyfi í prófinu og tók frekar sjúkrapróf einhverjum dögum síðar í stað þess að taka prófið á þeim degi.

Ég er ekki hjátrúarfullur


Loksins kominn á jeppann

DSC00018Loksins er jeppinn kominn til landsins og búið að leysa hann úr tolli.  Fengum hann í okkar hendur á þriðjudaginn og er maður búinn að vera "úti að aka" síðan.

Ég er rosalega glaður er vera loksins kominn á jeppa


Eitt af vandamálum góða verðursins

Það er mjög sérstakt að vera einhversstaðar í veiði og hlusta á veiðimenn óska eftir rigningu en það sennilega eina útivistin þar sem sérstaklega er ósað eftir regni.

Ég vona að það muni rigna áður en ég fer í veiði í sumar


mbl.is „Það vantar vatn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru hærri sektir að skila sér?

Getur verið að hærri sektir fyrir t.d. hraðakstur séu að skila sér?  Það er alveg ljóst að á meðan fólk sleppur þá er það ekki að hægja á sér en hægir hugsanlega á sér í einhvern tíma ef þarf að greiða háar sektir, eða hvað?

Ég veit ekki hvort hærri sektir skili einhverju


mbl.is Hraðakstur þrátt fyrir helmingi hærri sektir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugnabit og handarbrot

Fór nú um helgina í Þingvöll og var þar á tjaldsvæðinu með alla í fjölskyldunni nema tvo, en stóra barnið var hjá ömmu sinni þar sem hann var að vinna um helgina og kötturinn Villi var heima að passa húsið.

Ég er á því að flugurnar á Þingvöllum hafi lagt mig í einelti en ég var bitin á allnokkrum stöðum en flugnanetið gerði samt sitt gagn en eitthvað hafa þær "blessaðar" náð að troða sé inn hjá mér og gera sitt.

Veðrið á Þingvöllum var fínt en þrátt fyrir smá rigningu þegar við mættum á svæðið á föstudagskvöldið rættist vel úr því á laugardaginn en við fórum yfir á Laugarvatn og prófuðum þar "gömlu góðu gufuna" sem brátt verður lögð niður í núverandi mynd.

Á laugardagskvöldið fengum við símtal frá stóra "barninu" en hann hafði dottið í eftirmiðdaginn á leið heim úr vinnu og var kominn á slysavarðstofuna til þess að láta kíkja á sig.  Skoðunin sýndi að drengurinn er handarbrotinn þannig að hann verður í gifsi næstu 4-6 vikurnar.  Vorum ekkert að stressa okkur á því að fara í bæinn til þess að huga að "barninu" þar sem við vissum að amman myndi sinna honum og lítið annað sem við gætum gert fyrir hann.

Tókum okkur saman snemma á sunnudaginn og vorum komin í bæinn fljótlega eftir hádegið og gátum sinnt "barninu" sem var voða aumur yfir þessu (eins og við karlmenn verðum þegar eitthvað bjátar á) en þetta mun örugglega gróa áður en hann giftir sig.

Fór síðan um kvöldið í messu í Garðakirkju og söng þar með félögum mínum úr Kór Vídalínskirkju, en Sr. Friðrik Hjartar sá um athöfnina þar.

Ég er rosalega ánægður með helgina mína


Aftur segi ég eins og ég hef sagt áður

Foreldrar eiga að hafa síðasta orðið um það hvort "börnin" þeirra fari á hátíð eins og þessa.  Ef unglingar eru til vandræða á svona hátíð þá er það foreldravandamál en ekki unglingavandamál.  Ef þér finnst vænt um "barnið" þitt þá segir þú nei við því að þau fari á útihátíð eða í eftirlitslausar útilegur.

Ég segi hiklaust nei við "barnið" mitt


mbl.is Fjöldi unglinga stefnir á Írska daga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of góður dauðdagi

Það verður örugglega tekið vel á móti honum

Ég held að margir hefðu viljað koma að dauða þessa manns


mbl.is Pyntingameistari Pinochets látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband