9.11.2009 | 20:08
Kosningaloforð
Hér eru VG-liðar með Steingrím J. Sigfússon fremstan í flokki að efna kosningaloforð sem gefið var. Þau lofuðu því að lækka laun og hækka skatta. Kemur kannski sumum á óvart að VG liðar efni kosningaloforð, en sennilega ekki þegar kemur að því kosningaloforði að hækka skatta.
Hvað ætli þingmenn Samfylkingarinnar segi núna? Er þetta eitthvað í takt við skjaldborgina sem Jóhanna ætlaði að reisa um heimilin?
Hver gera pottverjar núna, eða eru þeir kannski allir komnir í ríkisstjórn?
Ég held að þetta lið sé ekki með öllum mjalla
47% skattur á launatekjur? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það liggur við að maður vitni í Mikka ref þegar maður les svona bull og vitleysu
Hægrimenn komu þjóðinni í gjaldþrot og kenna svo vinstrimönnum um afleiðingarnar...
Gaman að því
Ragnar (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 21:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.