Vor í Berlín

Fer nú á föstudaginn til Berlínar með Kór Vídalínskirkju til Berlínar.

Í Berlín munum við meðal annars verða með tónleika í kirkju sem heitir Segenskirche en hún er staðsett á Prenzlauer Berg.  Þar munum við flytja bæði kirkjulega og veraldlega íslenska tónlist. 

Hópurinn sem fer telur 34 aðila með mökum og efa ég ekki að það verður skemmtilegt að koma til Berlínar.

Ef einhver á þarna leið um þá býð ég honum hér með á tónleikana, en þeir hefjast á sunnudaginn kl. 18:00 og standa í um eina klst.  Held að enginn verði svikinn af þessu

Ég hlakka mikið til að fara til Berlínar

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Systir mín og mágur eru einmitt að fara til Berlínar á morgun. Góða skemmtun og gangi ykkur vel.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.5.2008 kl. 23:51

2 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Takk fyrir Ásdís

Þú getur sagt þeim að ég sé þessi athyglissjúki

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 9.5.2008 kl. 00:33

3 Smámynd: Áddni

Jæja...þú ert hérmeð klukkaður og átt því að hripa bloggfærslu um 7 hluti sem að þú ert þakklátur fyrir :) Er lífið ekki bara yndislegt?

Áddni, 10.5.2008 kl. 11:18

4 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sæll Gísli! Allir á leiðinni til Berlínar, enda um yndislega borg að ræða. Ég var svo heppinn að læra tvö ár í Austur-Berlin (1986-88) á sínum tíma og bætti svo við einu ári í Vestur-Berlín.

Farðu varlega í stórborginni!

Kveðja, Guðbjörn Guðbjörnsson

Guðbjörn Guðbjörnsson, 11.5.2008 kl. 12:08

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Takk fyrir boðið! Hefði komið svo sannarlega ef ég hefði átt leið hjá!

Edda Agnarsdóttir, 12.5.2008 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband