Valhöll getulaus?

Hverskonar málflutningur er þetta hjá talsmanni stjórnmálaflokks sem aldrei hefur setið í ríkisstjórn.  Er þá getuleysi VG að kenna að þeir hafa aldrei komist í meirihlutasamstarf á þingi?

Svandís er að tala um þann stjórnmálaflokk sem langflestir kjósendur hafa ákveðið að fylgja en enginn flokkur kemst nálægt því fylgi sem flokkurinn hefur í borg og á þingi. 

Núna slá þeir sér á bjóst og segjast vera svo frábærir og góðir en til þess að mynda meirihluta í borginni þurftu þeir að leita til margra af þeirra höfuðandstæðingum, er það ekki getuleysi?

Ég held að Svandís og VG verði að líta í eigin barm áður en þeir bólsóttast út í aðra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Þú ert einn mesti Sjálfstæðismaður sem ég þekki, þekki ég þó marga góða. Oft er betra að líta í eigin barm en láta reiði sína bitna á andstæðingunum. Það gefur oftast betri raun. Lífið er meira en pólitík... sem betur fer.

Kveðja að austan!

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 13.10.2007 kl. 12:27

2 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Hæ frændi

Ég lýsi mínum skoðunum á öðrum flokkum hér á netinu.  Fer í annan farveg með það sem snýr að flokknum innávið.

Ég er og verð sjálfstæðismaður og er stoltur í meginatriðum af því sem flokkurinn hefur gert.  Eitt af því sem hann hefur staðið fyrir er uppbygging álvers á austurlandi.  Því hefi ekki verið komið í framkvæmd ef vinstrimenn hefðu stýrt landinu.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 13.10.2007 kl. 22:49

3 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Það er rétt, samt var það Framsóknarflokkurinn sem dró vagninn í uppbyggingunni fyrir austan, við megum ekki gleyma því:)

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 14.10.2007 kl. 11:24

4 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Bíddu nú við frændi.  Er ekki sagt að Framsóknarflokkurinn hafi aðeins framkvæmt það sem Sjálfstæðisflokkurinn lagði til?

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 14.10.2007 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband