11.10.2007 | 17:06
Núna gerist örugglega það sem ég spáði
Eins og ég hélt fram í aðdraganda þess að ný ríkisstjórn var mynduð þá er ég nokkuð viss um að ríkisstjórnin muni einnig springa eftir þetta. Tel fullvíst að formaður Samfylkingarinnar hefur þarna verið með í ráðum en þetta verk er akkúrat í hennar anda.
Fyrst sprengdi hún R-listann, síðan fór hún fram á móti sitjandi formanni, í Samfylkingunni, og svila sínum, lagði niður Kaffibandalagið, og núna hefur hún hönd í bagga til þess að sprengja meirihlutasamstarfið í Reykjavík.
Núna ætlar hún síðan aftur að stofna til stjórnarsamstarfs í borginni með sömu flokkum sem hún áður sveik. Hún er skrítin þessi tík, sem kölluð er pólitík
Ég bíð eftir því að formaður Samfylkingarinnar sprengi ríkisstjórnina
Nýr meirihluti myndaður í borgarstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Maður treystir bara engu núorðið.
Ásdís Sigurðardóttir, 11.10.2007 kl. 22:06
Þetta er sorglegt. Björn Ingi er ekki merkilegur pappír í mínum bókum.
Ívar Pétur (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 16:40
Ef hann væri bók þá held ég að ég myndi ekki lesa hana. Allavegana ekki eftir síðustu atburði.
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 12.10.2007 kl. 17:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.