Steingrímur er pirraður út í Ingibjörgu

Í fjölmiðlum í dag hefur Steingrímur J. Sigfússon verið frekar pirraður (eins og reyndar oft áður) út í Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og hlýtur maður að velta fyrir sér út af hverju það er.

Getur verið að hann sé pirraður yfir því að Ingibjörg lofaði því í aðdraganda kosninga að alveg ljóst væri í hennar huga að fyrsti kostur Samfylkingarinnar væri að ræða við hina flokkana í stjórnarandstöðinni um myndun ríkisstjórnar?  Getur verið að hann sé nú pirraður yfir því að Ingibjörg sé núna að ganga á bak þeirra orða?  Ætli hann sé núna að komast að því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sé ekki heil í því sem hún segir?  Ætli við sjálfstæðismenn getum treyst orðum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Samfylkingarinnar?

Ég skil vel að Steingrímur sé pirraður út í Ingibjörgu og Samfylkinguna.

Ég er líka pirraður út í Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Samfylkinguna 


mbl.is Steingrímur: Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar allt of hægrisinnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband