Nauðsynlegt að kunna skyndihjálp

Allt er gott sem endar vel og verður að telja að rétt viðbrögð hafa bjargað drengnum.  Ég vil hvetja fólk til þess að sækja námskeið í skyndihjálp en fyrsta hjálp við svona aðstæður getur bjargað mannslífum.

Ég hef sótt námskeið í skyndihjálp


mbl.is „Þetta er kraftaverk"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög gott framtak

Framtakið er mjög gott en ég held því miður að þeir sem hefðu þurft að mæta þarna hafi ekki mætt.  Hvað sýndi sig þegar bifhjólamenn ætluðu að sýna samstöðu.  Menn voru ekki að keyra hægar eftir það.  Hvað sýnir sig t.d. í skólum þegar verið er að halda foreldrafundi til þess t.d. að sporna við eftirlitslausum partýum og unglingadrykkju?  Þeir sem helst hefðu þurft að mæta koma ekki á þannig fundi.

Vonandi hef ég rangt fyrir mér í þessari ályktun minni en ég vona að sjálfsögðu að þetta muni skila árangri og vekja fólk til umhugsunar.

Ég virkilega vona að þetta framtak muni skila tilætluðum árangri


mbl.is Mikil þátttaka í göngu gegn umferðarslysum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æfingaakstur

Drengurinn hefur verið í æfingaakstri

Ég er með minn 16 ára í æfingaakstri


mbl.is 11 ára drengur undir stýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfið ákvörðun

Það hlýtur að vera erfitt að standa frammi fyrir þeirri ákvörðun að segja nei í tilvikum sem þessum.

Ég vona að ég muni aldrei þurfa að taka svona ákvörðun


mbl.is Ítreka dauðahótun gegn breskum blaðamanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skil ekki alveg

Hann er að rjúfa skilorð en fær samt aftur skilorðsbundinn dóm.

Ég skil þetta ekki alveg


mbl.is Beit lögreglukonu í lærið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofsaakstur unglinga foreldravandamál?

Hvaða foreldri samþykkir það að 17 ára unglingur setjist undir stýrið á 300 hestafla bíl sem er ætlaður til hraðaksturs?  Má ekki segja að ef foreldrarnir samþykki það þá séu þau að samþykkja það að "barnið" sé að stunda ofsaakstur í borgum og bæjum?  Er þetta ekki svipað því að foreldrar sem kaupa áfengi fyrir börnin sín séu að samþykkja drykkju þeirra? 

Hvet alla foreldra og forráðamenn til þess að hafa áhrif á það hvernig bíl "börnin" þeirra aka um á.

Ég myndi aldrei samþykkja það að "barnið" mitt væri á hraðakstursbíl


Genin í lagi en ekki skynsemin

Strákurinn hefur bara verið á þörfinni.  Genin eru sennilega í lagi hjá honum er ekki skynsemin.

Ég held að mín gen séu í lagi


mbl.is Kynlífstækin kostuðu fangelsisdóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biðröðin á Hellisheiði

Var einn af fjölmörgum sem lenti í biðröðinni á leiðinni heim á sunndaginn. 

Þegar beðið var í brekkuna fyrir ofan Litlu kaffistofuna horfðum við upp á mótorhjólamann fara þar upp brekkuna á leiðinni austur og prjónaði hann upp alla brekkuna.  Sá hefur greinilega ekki verið mjög hræddur við grindverkið sem mótorhjólamenn hafa farið fram á að verði tekið niður.

Ég held að sá aðili sé ekki sammála öðrum mótorhjólamönnum


mbl.is Þung umferð í átt að höfuðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fólk ekki alveg í lagi

Jahérna.  Hef ekki séð viðtalið í Blaðinu í dag en skil ekki í þessum ágæta dreng að láta einhvern sem hann þekki ekki keyra bílinn sinn.

Ég vona að þetta verði öðrum til umhugsunar


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólöglegt?

Er eitthvað ólöglegt við að spila á spil og leggja undir?  Hver sem er getur farið í spilakassa og lagt þar undir allt frá 10 krónum og uppúr og er það löglegt en síðan er ólöglegt að setjast niður með spilastokk og leggja undir 10 krónur og uppúr.  

Tel að það þurfi að gera eitthvað róttækt í þessum málum.  Annaðhvort á að leggja niður spilakassana eða lögleiða spilastokkana.

Ég hef spilað í spilakassa og spila oft á spil


mbl.is Pókermót haldið hjá félagi ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband