18.11.2007 | 23:36
Opinbert fyrirtæki?
Er opinberu fyrirtæki ekki skylt að gefa uppi hvað gerist á fundum? Er hægt að halda svona ákvörðunum eða niðurstöðum leyndum?
Ég bara spyr.
Hluthafafundi REI lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2007 | 22:59
Fyrst hélt ég ...
...að verið væri að tala um að Baugur ætlaði að reyna að losna við dönsku ríkisstjórnina af höndum sér.
Ég sá síðan að svo var ekki
Vilja kaupa dönsku ríkisstjórnina af höndum sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.11.2007 | 17:08
Vakning í gangi
Mikil vakning er í þjóðfélaginu fyrir hlutum sem snúa að flokkun og endurvinnslu.
Stykkishólsbær sýnir hér mikið frumkvæði og áræðni að leggja í þetta verkefni en fleiri sveitarfélög eiga örugglega og vonandi eftir að feta í þeirra fótspor.
Ég fagna þessu verkefni sérstaklega
Allt sorp í Stykkishólmi flokkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2007 | 17:06
Pant ekki fá þessa þotu
Var búinn að panta eina svona þotu og verð að passa að þessi "lendi" ekki hjá mér.
Hvað ætli verði um þessa þotu? Ætli hún verði löguð aftur og seld sem "tjónaflugvél".
Ég vona að ég "lendi" aldrei í þessari
Klessukeyrði nýja Airbus-þotu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2007 | 22:48
Mikil uppbygging í Garðabæ
Mjög mikil uppbygging hefur verið í Garðabæ á undanförnum árum og hefur styrk stjórn Sjálfstæðisflokksins verið þar í forystu eins og alkunna er.
Stórfyrirtæki eins og IKEA, BYKO og fleiri hafa kosið að vera með sínar verslanir þar og má telja fullvíst að fleiri aðilar horfi til Garðabæjar þegar opna á nýja verslun eða höfuðstöðvar. Nýr miðbær mun rísa þar á næstu misserum og hlakka ég mikið til að sjá hvernig það mun takast.
Sérlega ánægjulegt er að heyra af þessu nýjasta útspili og verður sérstakur heiður að fá Jónasartorg í Garðabæ.
Ég er Garðbæingur og er stoltur af þeirri uppbyggingu sem á sér stað þar
Nýtt torg í Garðabæ nefnt Jónasartorg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2007 | 22:36
Óhapp við skyldustörf
Finnst ekki rétt að refsa eigi manninum jafn harðlega og stefni í fyrir óhapp við skyldustörf. Eina spurningin sem ég set við þetta er það að maðurinn sé að hlaupa með hlaðna byssuna en það er ekki útskýrt sérstaklega í fréttinni.
Ég held að lögreglumenn séu ekki öfundsverðir af störfum sínum
Ítalskur lögreglumaður verður ákærður fyrir morð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.11.2007 | 22:30
Ég hélt ...
að nýr meirihluti hefði gefið það út að þeir myndu ekki líða það að þessir súlustaðir væru í Reykjavík. Spaugilegt er samt að hugsa til baka en þessir sömu flokkar gáfu einhverjum af þessum stöðum leyfi fyrir þessum rekstri.
Ég segi ekki meira um þetta að sinni
Enn frestað að afgreiða rekstarleyfisumsóknir nektarstaða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2007 | 23:20
Vonandi
Vona að lögreglan muni ná höfuðpaurunum að þessari síðu og sakfella þá fyrir rasistaáróður af verstu gerð.
Ég er á því að þeir sem standa að þessu megi skammast sín
Rannsókn hafin á kynþáttanetsíðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.11.2007 | 17:28
Þarft og gott málefni
Yfirleitt get ég ekki fagnað því sem Samfylkingin hefur gert í nýrri ríkisstjórn en þetta verk er bæði þarft og gott.
Ég er ekki alveg svo blár að ég sjái ekkert gott hjá Samfylkingunni
Félagsmálaráðherra boðar úrbætur fyrir langveik börn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.11.2007 | 17:27
Úr vörn í sókn
Frábært að sjá hvernig tekist hefur að snúa við blaðinu í nýtingu á landsvæðum og húsnæði sem áður tilheyrði hernum. Er ekki styrkri stjórn Árna Sigfússonar Sjálfstæðisflokksins hér um að þakka?
Árni Sigfússon hefur unnið frábært starf í Reykjanesbæ og hefur unnið sérstaklega vel úr því svæði sem losnaði þegar herinn fór. Einhverjir hrakspámenn höfðu spáð því að Reykjanesbær og nágrenni myndi lognast út af þegar herinn fór en styrk stjórn Árna hefur heldur betur snúið úr vörn í sókn.
Ég tel að Árni Sigfússon sé að vinna frábært starf í Reykjanesbæ.
150 íbúðir bætast við fyrir námsmenn á Vallarheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)