30.12.2009 | 18:07
Hverjum trúum við frekar?
Rétt er að hvetja fólk og sérstaklega Alþingismenn til þess að kynna sér vel yfirlýsingu lögfræðiskrifstofunnar Mishcon de Reya og taka síðan upplýsta ákvörðun um hverjum á að trúa í þessu máli.
Hvort trúir fólk frekar íslenska embættismanninum eða erlenda lögfræðingnum?
Ég hvet ykkur til þess að kynna ykkur yfirlýsinguna
Bjóða eiðsvarinn vitnisburð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ekki erfitt að velja, þar sem íslenskir ráðamenn hafa verið þekktir fyrir lygar,svik og pretti ásamt því að vera með klíkuskap þegar kemur að ráðningum ættingja og vina þeirra í valdastöður.
A.L.F, 30.12.2009 kl. 18:28
Hvaða embættismanni datt í hug að hafa semband við tjéða lögfræðiskrifstofu sem vogar sér að reyna að hafa áhrif á málefnalega umræðu þings og þjóðar án umboðs. Þeir höfðu umboð til skírslugerðar. /punktur/
Mér finnst ástæðulaust að greiða þeim fyrir viðvikið. Þeir hafa svikið.
Gísli Ingvarsson, 30.12.2009 kl. 18:34
Alþingi sjálft kallaði eftir upplýsingum í dag frá Lögfræðistofunni. Þegar upplýsingarnar virðast hafa farið að verða óþægilegar fyrir Ríkistjórnina þá sagði Formaður fjárlaganefndar stopp....
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 30.12.2009 kl. 18:41
Svavar Gests ætti að kæra fyrir landráð.
nonni (IP-tala skráð) 30.12.2009 kl. 19:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.