29.4.2007 | 14:52
Ef ég ætti fjölmiðlafyrirtæki
Ef ég ætti fjölmiðlasamsteypu þá myndi ég nýta mér það út í ystu æsar. Ég myndi stöðugt nota fjölmiðlana mína til þess að koma mínum vörum og fyrirtækjum að. Ég myndi sjá til þess að stöðugt væri verið að segja frá söngvaranum sem væri að reyna að meika það í útlöndum. Ég myndi sjá til þess að stöðugt væri verið að segja frá stúlknabandinu sem væri líka að reyna að meika það. Ég myndi sjá til þess að fyrirtækin sem ég ætti væru stöðugt í sviðsljósinu í mínum fjölmiðlum. Ég myndi passa upp á það að fólkið sem væri að starfa á mínum fjölmiðlum væri aldrei að skrifa illa um mig og mín fyrirtæki.
Ég vildi að ég ætti fjölmiðlafyrirtæki
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.